laugardagur, mars 03, 2007

Umhrasanir

Internetið er undursamlegt. Ég segi það í fúlustu alvöru að ég skil ekki hvernig fólk fór að fyrir tíma þess. Stundum fæ ég þó, og býst við að þetta eigi um fleiri, það sem ég kalla internet-eitrun, sem lýsir sér í því að eftir langan dag fyrir framan tölvuna hellist yfir mig skyndileg ógleði og ég finn hjá mér þörf til þess að ganga á Esjuna eða fara í ísklifur eða sjóbað eða eitthvað annað óhugnanlega kalt og karlmannlegt. Aldrei verður það þó úr að ég geri neitt af þessu, og það er svo undarlegt, að þrátt fyrir skýr sjúkdómseinkenni hætti ég ekki einu sinni í tölvunni! Það er einmitt það sem er svo ávanabindandi við internetið, það er alltaf eitthvað meira að sjá og öppdeita og skoða... er einhver búinn að kommenta á þessa síðu sem ég kommentaði á fyrir tveimur tímum? Er þessi búinn að hlaða inn nýjum myndum? Er ég búin að fá nýjan póst frá því fyrir 10 mínútum? Og það sorglega er að oft er það raunin, því alltaf er eitthvað nýtt að gerast einhvers staðar. Þess vegna getur maður aldrei farið, kúplað sig alveg út, maður er gersamlega háður. Þó finnst manni stundum að ekkert mjakist, enginn bloggi og öllum þarna úti sé sama um mann.

Þá er Stumble Upon ágætis tímamorðingi. Svona gadget (vantar gott íslenskt orð... tól?) sem er stika í vafranum hjá manni og ef maður ýtir á takkann Stumble fer maður á einhverja síðu sem tengist áhugasviði manns og sem aðrir sem nota tólið hafa mælt með. Sjálfur mælir maður svo með síðum sem manni þykja góðar. Ég gerði þetta áðan í smástund og hver einasta síða var áhugaverð, skemmtileg eða fræðandi. Hérna eru þær, og nota bene, engri er sleppt úr:

Hérna má sjá argentínska fjölskyldu sem hefur frá 1976 tekið myndir af sér hvern einasta 17. júní til að sjá breytingarnar. Það er gaman að fylgjast með heilli fjölskyldu og ímynda sér allt sem hún hefur gengið í gegnum á þessum tíma.

Hérna lærir maður að teikna andlit.

Þessu var ég búin að gleyma... gamla trikkið.

Hér er ritgerð eftir Einstein, þar sem hann segir meðal annars:

"
This topic brings me to that worst outcrop of herd life, the military system, which I abhor... This plague-spot of civilization ought to be abolished with all possible speed. Heroism on command, senseless violence, and all the loathsome nonsense that goes by the name of patriotism -- how passionately I hate them!"

Þetta gæti tekið tíma.


Þetta er ógeðslega skemmtilegt þegar maður hefur ekkert að gera: Búðu til þinn eigin sjónauka!

Japanarnir klikka ekki. Hér kenna þeir okkur nýja leið við að brjóta saman föt.

Þetta er bara of svalt
. Síðasta myndin er kreisí.

...Þegar Sókrates hitti Jesú.

Síðan www.whatshallireadnext.com segir manni hvað maður á að lesa næst.

Rauðhnakkar!


Þessi síða er samt langsniðugust: Musicovery.com. Ótrúlegt að ég hafi ekki vitað af henni fyrr. (og er örugglega sú síðasta til að heyra um hana eins og venjulega...) Hún skýrir sig nú sjálf, útlitið er bara svo flott og framsetningin myndræn - og fullt af frábærri tónlist.

Jæja, þetta áttu nú aldrei að vera svona margir hlekkir. Nú er ég hætt, time to hit the hay.

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta var ekkert smá skemmtilegt. Nú langar okkur Árna líka að taka myndir af okkur í 30 ár og sjá muninn!

Svanhvít sagði...

Já, gerið það!

Þura sagði...

Í dag ætla ég að prufa musicovery.com ... byrjaði á orkuríkum og jákvæðum Carlinhos Brown.

Þetta er spennó :)

Svanhvít sagði...

O...carlinhos brown er æði.. hann er vægast sagt orkuríkur...

Þura sagði...

Þetta var æðislegur dagur með http://www.musicovery.com/

Eftir Carlinhos kom slatti af heimstónlist, svo ghostbusterslagið og Honey honey úr ABBA söngleiknum.

Fullt af BB King, Rivers of Babylon með Boney M, fullt af 50´s blúsurum.

Í lok dags komu TLC og MC Hammer mér í gírinn. Og síðustu droparnir voru mjatlaðir út með hjálp run dmc og rapper´s deleight sló í gegn.

... svo ég nefni lítið brot :)

Á morgun er bókað að ég prufi fönk takkann.... geeeeðveikt!

Nafnlaus sagði...

ekkert sma skemmtilegar sidur! madur verdur ad byrja ad taka myndir af ser. og gaman ad bua til svona kiki. hvada fleiri skemmtilegar sidur attu i pokahorninu?

gulli sagði...

úff maður..

ég ætlaði bara rétt að líta á nýjasta vefmeyjarspunann en svo fóru einhverjar klukkustundir í allar þessar krækjur sem voru hver annarri áhugaverðari.

kannski voru það bestu stundir lífs míns..

Svanhvít sagði...

Já, við vitum það sjaldnast fyrr en eftir á...

Nafnlaus sagði...

Ég er hér vegna stumble