KaSu og sumarið
Jæja, loksins er að koma sumar og þá fer Svanhvít til útlanda. Vilji einhver vita mín ferðaplön í sumar eru þau svohljóðandi:
4.-11. júní - Kórferðalag með Kammerkór Suðurlands til Elsass-héraðs í Frakklandi. Tónleikar í Strassborg og fleiri stöðum, gist á rómantísku hóteli þar sem má vera með hunda en ekki börn. Frábær hópur og frábær tónlist.
11.-17. júní - Sevilla og Cádiz á Spáni. Sólbað og sviti á ströndinni á Spáni. Jafnvel í tjaldi ef ég verð í stuði. Loksins fer Svanhvít til Andalúsíu!
17.- ca. 21. júní - Kosice í Slóvakíu. Heimsókn til Ivetu vinkonu, jafnvel slást fleiri góðir Slavar í hópinn. Já, Svanhvít hefur vingast við óvinina í austrinu, hinum hræðilegu austantjaldslöndum sem þrá ekkert heitar en að skemma árlega kvöldskemmtun fyrir Íslendingum.
22.-24. júní - eitthvað skemmtilegt einhvers staðar í Mið-Evrópu.
24. júní - flýg heim frá Frankfurt. (Reyndar geri ég út frá Frankfurt, flýg þangað og þaðan til allra landanna - 10€ er ekki svo slæmt fyrir miða til Bratislava með sköttum.)
Svo er ég svo heppin að vera á Loftbrúrmiða svo ég má taka 100 kíló með mér... vantar einhvern eitthvað þungt frá Evrópu? Nei djók, nenni ekki að bera það...
Júlí-ágúst - vinna
Nokkrir hlekkir:
David Blaine trikk - því miður krakkar, la magia no existe
Póstkort frá því um 1900 þar sem er spáð fyrir um árið 2000. Af hverju er þetta ekki allt til? Mig langar í vængi, og það væri ekkert slæmt að hafa svona veðrahvolf yfir borginni ... Hvað þá að fara á húsinu sínu í vinnuna!
Hvernig datt manninum í hug að búa til risamynd af peningaseðli úr eggjum?
Magnaðar myndir af gömlu fólki og ævi þess rakin.
O magnum mysterium eftir Morten Lauridsen Við erum að syngja þetta verk í kórnum, þetta er frábær flutningur.
Tíhí
þriðjudagur, maí 22, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
OH en ótrúlega hressandi lesning elskan mín! VIldi að ég gæti farið með þér! Takk fyrir síðast. Ég sé næstum því húsið þitt héðan!
Þetta hljómar girnilegt.
Ég ætla á Vestfirði og í bíó á Akureyri.
Ég hata að lesa blogg um tilvonandi eða nýafstaðnar utanlandsferðir viðkomandi.
(ferðasögur eru þó oft skemmtilegar).
Sástu ekki í sjónvarps handbókinni að það er „úti“ að tala um tilvonandi utanlandsferðir og sumarleyfisplön (sérstaklega með miklum fyrirvara).
Trúi ekki orði sem ég les í sjónvarpshandbókinni. Það er úti að lesa sjónvarpshandbókina.
Ferðaplön eru nýja 'ekki tala um ferðaplön'
Skrifa ummæli